Heiti síðu
Við höfum þekkinguna!
Einstakur mannauður, þriggja áratuga þróuð aðferðafræði, hugvit, sköpunargleði og hárfín tilfinning fyrir verðmætasköpun, samtvinnast í Sagafilm.
Sagafilm er stærsta sjálfstæða framleiðslufyrirtæki landsins á sviði sjónvarpsþáttagerðar, sjónvarpsauglýsinga, kvikmyndagerðar, viðburða og efnis fyrir nýmiðla.
Sagafilm á sér langa sögu í framleiðslu sjónvarpsefnis í öllum flokkum. Samvinna, gæði, gagnkvæm virðing, hagkvæmni, atorkusemi og nýsköpun eru lykilorðin, sem unnið er eftir. Þar sem hugmyndafræðin og framboðið byggir á markvissu eftirliti með sérstökum þörfum sjónvarsstöðvanna, áhorfenda og markaðarins.
Sagafilm er með púlsinn á því sem er efst á baugi hverju sinni í afþreyingariðnaðinum og styður markvisst við bak viðskiptavina sinna til að auka hróður þeirra hvers og eins sem mest.
Sagafilm er eina framleiðslufyrirtækið í íslenskum afþreyingariðnaði, sem hefur reynslu af því að framleiða svonefnd "formöt" fyrir heimamarkaðinn. Hér einnig þáttaraðir byggðar á raunveruleika. Meðal formata, sem framleidd hafa verið fyrir íslensku sjónvarpsstöðvarnar eru; X-Factor, Idol-Stjörnuleit, Ástarfleyið, Íslenski piparsveinninn, Það var lagið, Allt í drasli og Viltu vinna milljón.
Sagafilm hefur þróað og framleitt þáttaraðir sem hafa fengið frábærar viðtökur og gott áhorf, þar má nefna hina marg verðlaunuðu sjónvarpsþáttaröð Stelpurnar, Svínasúpuna, Kallakaffi og Næturvaktina. Einnig er í þróun 6-7 leiknar þáttaraðir fyrir RÚV og Stöð 2 sem sýndar verða á næstu misserum.
Starfsreynslan innan Sagafilm hefur í þrjá áratugi verið gæðastimpill atvinnumanna í sjónvarps- og auglýsingageiranum. Með vaxandi og fjölbreyttara fyrirtæki taka stjórnendur Sagafilm enn alvarlegar það hlutverk fyrirtækisins að vera vagga skapandi og einstakra atvinnumanna í íslenskum framleiðsluiðnaði.
Sagafilm þjónar á ári hverju fjölmörgum erlendum aðilum, stórum og smáum, sem koma hingað til að nýta íslenskt hugvit og verkvit og ekki síður landslag til sjónvarps, auglýsinga og kvikmyndagerðar. Meðal stærri verkefna má nefna; View to a Kill (James Bond), Tomb Raider, Die Another Day (James Bond) og Batman Begins.
Sagafilm hefur verið afkastamesti framleiðandi vandaðra heimildarmynda fyrir sjónvarp frá stofnun fyrirtækisins og þar með verið virkur þátttakandi í varðveislu sögu og menningar þjóðarinnar. Sagafilm á yfirgripsmikið myndasafn, sem nýtist öðrum kvikmyndagerðarmönnum og geymir perlur lands og lýðs m.a. á stafrænu formi.
Sagafilm hefur nú einnig haslað sér völl sem einn umsvifamesti framkvæmdaaðili atburða hér á landi. Stórviðburðir hjá fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum eru skipulagðir á fagmannlegan hátt og með þeirri fullvissu að hver og einn viðburður verði að sameiginlegri minningaperlu þátttakenda.
We Know How