Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Ragnar Agnarsson

Ragnar Agnarsson er fæddur í Reykjavík og hóf feril sinn í sjónvarpsiðnaðinum á níunda áratug síðustu aldar.

Ragnar er sjálfmenntaður og hefur komið að flestöllum verksviðum innan greinarinnar. Hann varð fljótlega einn viðurkenndasti kvikmyndatökumaður þjóðarinnar og eftirsóttur á erlendum vettvangi oft á tíðum í samstarfi við bestu auglýsingaleikstjóra á hinum Norðurlöndunum.

Ragnar bjó í tvö ár í Los Angeles, og vann þar í lausamennsku sem tökustjóri.

Þegar hann svo kom aftur heim til Íslands árið 1999 hóf hann leikstjórnarferil og nýtur sem slíkur viðurkenningar sem sérlega afkastamikill og sjónrænn miðlari.

Ragnar hefur leikstýrt auglýsingum fyrir stærstu fyrirtæki og vörumerki landsins, þar á meðal eru Spron, Baugur Group, Nissan, Subaru, Mitsubishi, Pajero og Toyota.

Videos:
Baugur Group
Hekla Pajero
Ingvar Helgason Subaru Impreza
Happdrætti Háskóla Íslands
Spron Hótel Borg
femin.co.uk "keeper"
Baugur image 2006
Vífilfell Coke
3-Plus DVD Kids
Weetos
SHAKE
SÍBS - Pool
SÍBS - Gangur

Leita