Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Guðjón Jónsson

Guðjón Jónsson
Guðjón er fæddur í Reykjavík. Strax í menntaskóla kviknaði hjá honum brennandi áhugi á kvikmyndagerð og hann eyddi meiri tíma í klippiherberginu í skólanum en skólastofunni. Þegar hann var einungis nítján ára var honum boðið starf hjá Norðuljósum, síðar 365. Það leið ekki langur tími þar til hann var skipaður yfirmaður hönnunardeildarinnar.

Guðjón fór eins og stormsveipur um auglýsingamarkaðinn árið 2004 þegar hann vann að sínu fyrsta auglýsingaverkefni, Slow Down. Það er fyrsta og eina íslenska auglýsingin sem státar af Eurobest Gold verðlaununum. Auglýsingin komst í úrslit á Cannes og fékk nokkur önnur verðlaun á íslandi og Bandaríkjunum, þar á meðal bronsið á New York Festival.

Síðasta áratuginn Guðjón hann hefur starfað í auglýsingaheiminum hefur hann aflað sér mikillar reynslu og þekkingar og þroskast sem leikstjóri og listrænn stjórnandi. Áræðni og ákveðni eru hans aðalsmerki og bera verk hans það auðsýnilega með sér.
 
Guðjón hefur á síðustu árum tryggt sér sæti meðal fremstu leikstjóra í Evrópu og hann er rétt að byrja.

Videos:
Stöð 2 Sófinn
Sjóvá heima 63
Ikea
Skyr.is
Tónlist.is
Kristall
Iceland Express Áfangastaðir
MBL_Kafbátur
Umferðarstofa
Umferðarstofa - Beltin

Leita