Heiti síðu
Hannes Þór![]() Hannes hefur skotist uppá stjörnuhimininn á tiltölulega stuttum en afar farsælum leikstjórnarferli sem byrjaði með tónlistarmyndbandi fyrir Nylon sem leiddi svo til fjölda verkefna, bæði í auglýsingum og myndböndum. Hannes vakti nýlega athygli fyrir frábæra auglýsingu sína fyrir Hámark, orkudrykk þeirra Arnars Grant og Ívars Guðmundssonar sem tók fyrir kunnugleg stef úr myndinni The Kings Speech. Hannes var tilnefndur til Lúðursins, íslensku markaðs og auglýsingaverðlaunanna, fyrir forvarnarauglýsingar sínar á síðasta ári. |
Guðjón Jónsson![]() Guðjón er fæddur í Reykjavík. Strax í menntaskóla kviknaði hjá honum brennandi áhugi á kvikmyndagerð og hann eyddi meiri tíma í klippiherberginu í skólanum en skólastofunni. Þegar hann var einungis nítján ára var honum boðið starf hjá Norðuljósum, síðar 365. Það leið ekki langur tími þar til hann var skipaður yfirmaður hönnunardeildarinnar. |
Árni Ásgeirsson![]() Eftir útskrift úr "The Polish National Film School" hefur Árni unnið á mörgum sviðum kvikmyndagerðar en aðallega sem handritshöfundur og leikstjóri. Hann hefur leikstýrt tveim bíómyndum í fullri lengd, "Thicker Than Water" (2006) og Brim (2010). Myndirnar hans hafa farið á milli kvikmyndahátíða útum allan heim og má þar nefna Cannes, Toronto og Karlovy Vary og hafa þær unnir til verðlauna og fengið tilnefningar bæði hér heima og erlendis. Árni hefur einnig unnið sem auglýsingaleikstjóri. |
Ragnar Agnarsson![]() Ragnar Agnarsson er fæddur í Reykjavík og hóf feril sinn í sjónvarpsiðnaðinum á níunda áratug síðustu aldar. |
Einar Snorri![]() Einar Snorri tók uppá því að taka ljósmyndir af vini sínum Eið snemma árs 1990. Fóru þeir félagar svo niður í þrönga kjallaraholu til að lýsa myndunum á mattan pappír. Pappírnum svo dýpt ofan í vökvabakkana af tilviljunarhendi! Þetta kallaði á mjög áhugaverða útkomu, sem var einmitt það sem kveikti eldmóðinn fyrir áframhaldandi tilraunamennsku. Þessi nýju myndrænu vísindi urðu fljótt að atvinnu og fyrr en varði voru bræður flognir á braut yfir hafið langa og komnir í feitt í vestrinu. Ljósmynd varð að kvikmynd sem fljótt dansaði fjörug á myndfletinum. Einar Snorri vinnur núna einn á bát að enn frekari tilraunum, hér fyrir Saga Film. Til er í tusk af öllu tagi – kvikmynda list ef það er í lagi. |




