Sagafilm slær met með 29 tilnefningum til Edduverðlauna
Aldrei áður hefur eitt framleiðslufyrirtæki fengið jafnmargar tilnefningar til Edduverðlauna fyrir verkefni sín en Sagafilm í ár.
Verkefni þess eru tilnefnd til að minnsta kosti einna verðlauna í 16 af 22 flokkum sem Íslenska kvikmynda og sjónvarpsakademían veitir verðlaun fyrir. Djásnin í krúnu Sagafilm verða líklega að teljast kvikmyndin Bjarnfreðarson og sjónvarpsþáttaröðin Fangavakt en myndin er tilnefnd til 11 verðlauna og þáttaröðin til 13. Bjarnfreðarson og Fangavaktin deila 6 tilnefningum í flokkum leikara, búninga og leikstjórnar.
Ástríður, í leikstjórn Silju Hauksdóttur, með Ilmi Kristjánsdóttur í aðalhlutverki fékk 5 tilnefningar og Réttur í leikstjórn Sævars Guðmundssonar hlaut 4. Auk þessara verkefna hlaut stuttmyndin Epic Feil eftir Ragnar Agnarsson tilnefningu sem stuttmynd ársins og Logi í Beinni fékk tilnefningu fyrir skemmtiþátt ársins.
"Þetta er búið að vera ótrúlega gott ár fyrir okkur, þrátt fyrir allt sem á hefur gengið" segir Kjartan Þórðarson framkvæmdastjóri Sagafilm. "Við framleiddum uppáhalds bíómynd Íslendinga þetta árið auk þess sem flestir skrifaðir sjónvarpsþættir okkar eru tilnefndir til margra verðlauna. Gæði innsendinga hefur líklega sjaldan verið meiri enda bransinn búinn að taka stakkaskiptum á síðastliðnum árum og við stöndum stolt með okkar framleiðslu sem við teljum í dag vera komna á heimsmælikvarða".
Listi yfir tilnefningar Sagafilm er hér að neðan
1. Bjarnfreðarson Kvikmynd ársins Leikkona ársins Margrét Helga Jóhannsdóttir Leikari ársins Jón Gnarr Leikari ársins Jörundur Ragnarsson Leikari ársins Pétur Jóhann Sigfússon Handrit ársins Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Bragason Kvikmyndataka ársins Bergsteinn Björgúlfsson Leikmynd ársins Júlía Embla Katrínardóttir og Sveinn Viðar Hjartarson Búningar ársins Helga Rós V Hannam Gervi ársins Áslaug Dröfn Sigurðardóttir Leikstjóri ársins Ragnar Bragason
2 Ástríður Leikið Sjónvarpsefni ársins Leikkona ársins Ilmur Kristjánsdóttir Meðleikkona ársins Þóra Karítas Árnadóttir Meðleikari ársins Rúnar Freyr Gíslason Handrit ársins: Ilmur Kristjánsdóttir, Katla Margrét Þorgeirsdóttir, Sigurjón Kjartansson og Silja Hauksdóttir
3 Fangavaktin Leikið Sjónvarpsefni ársins Leikkona ársins Margrét Helga Jóhannsdóttir Leikari ársins Jón Gnarr Leikari ársins Jörundur Ragnarsson Leikari ársins Pétur Jóhann Sigfússon Meðleikari ársins Björn Thors Meðleikari ársins Gunnar Hansson Meðleikari ársins Ólafur Darri Ólafsson Handrit ársins Jóhann Ævar Grímsson, Jón Gnarr, Jörundur Ragnarsson, Pétur Jóhann Sigfússon og Ragnar Bragason Leikmynd ársins Sveinn Viðar Hjartarson og Júlía Embla Katrínardóttir Búningar ársins Helga Rós V Hannam Klipping ársins Sverrir Kristjánsson og Guðni Halldórsson Leikstjóri ársins Ragnar Bragason
4 Réttur Leikið Sjónvarpsefni ársins Leikkona ársins Jóhanna Vigdís Arnardóttir Leikar ársins Magnús Jónsson Meðleikkona ársins Tinna Gunnlaugsdóttir
5 Epic Fail Stuttmynd ársins
6 Logi í beinni Skemmtiþáttur ársins
Published: 08.02.2010 14:32
|