Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Ólafur Ragnar, Daníel og Georg styðja Íslenska Kvikmyndagerðarmenn

Sagafilm og aðrir aðstandendur Vaktarseríanna og kvikmyndarinnar Bjarnfreðarson ætla að koma saman á ný og leggja sitt af mörkum til bjargar íslenskri kvikmynda og sjónvarps menningu með því að gefa þjóðinni átta nýja sketsa af Næturvaktinni.

Höfundar, leikarar, framleiðendur, búningahönnuður, leikmyndahönnuður, tökumaður og förðunarmeistari ásamt ljósa, grip og hljóðmönnum leggja fram vinnu sína endurgjaldslaust og munu taka upp atriðin á bensínstöð Skeljungs við Laugaveg, fæðingarstað Vaktarseríanna.  Að framleiðslunni koma einnig fjölmargir einstaklingar á sviði eftirvinnslu við klippingu, hljóðsetningu, grafík, litaleiðréttingu og tæknivinnslu sem einnig gefa vinnu sína vegna verkefnisins.  Atriðin verða sýnd á Edduverðlaunahátíðinni sem fram fer 27. febrúar í beinni útsendingu Stöðvar 2 auk þess sem þau munu birtast á netinu.  35% niðurskurður á fjárfestingu ríkisins í kvikmyndaiðnaðinum mun bitna harkalega á innlendri framleiðslu leikins sjónvarpsefnis.

Published: 03.02.2010 10:52


Leita