Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

FOX og Sony Pictures bætast í hóp Vaktar aðdáenda

Um þessar mundir er háanna tími bandarískra sjónvarpsstöða að velja úr verkefnum sem fara eiga í framleiðslu næsta sumar. Margir eru tilkallaðir en fáir útvaldir í þessum efnum en þær góðu fréttir berast nú frá Vesturheimi að endurgerð íslensku þáttaraðarinnar Næturvaktarinnar sem framleidd var af Sagafilm og sýnd var á Stöð 2, í leikstjórn Ragnars Bragasonar sé á góðri leið með að birtast bandarískum sjónvarpsáhorfendum.

Alþjóðlega framleiðslufyrirtækið Reveille sem stendur að baki vinsælum þáttum á borð við The Office, Biggest Loser, Tudors og Ljótu Betty hafa fengið til liðs við sig Sony Pictures um að fjármagna og dreifa bandarískri útgáfu af Næturvaktinni þar sem allar helstu sögupersónar þáttanna og söguþráður yrði staðfærður inn í bandarískt samfélag líkt og gert var við The Office, en bandaríska útgáfan af þeim þætti hefur verið sýndur við gífurlegar vinsældir vestra síðan 2005.

 

Búið er að skrifa handrit að fyrsta þættinum og sjónvarpsstöðin FOX hefur tryggt sér sýningarréttinn á þáttaröðinni verði ákveðið að framleiða hana.  Á næstu dögum vikum mun það skýrast hvort og hvenær svokallaður PILOT þáttur verður framleiddur.  PILOT þáttur er fyrsti þáttur þáttaraðar, framleiddur á hefðbundinn hátt, með þeim leikurum sem þykja réttir í hlutverkin.  Þessi þáttur er svo notaður til prufusýninga fyrir almenning en viðbrögð þeirra ákveða svo hvort þátturinn fer í almenna framleiðslu.

 

"Viðbrögð Reveille, Sony Pictures og FOX hafa farið framúr björtustu vonum okkar og eru í raun alveg ótrúleg" segir Kjartan Þór Þórðarson, framkvæmdastjóri Sagafilm.  "Þetta hefur gengið hratt og vel fyrir sig og geinilegt að áhugi manna er mikill fyrir þessu verkefni." "Framúrskarandi árangur bíómyndarinnar "Bjarnfreðarson" sem sló Avatar úr topp sætinu hér heima hefur sitt að segja um áhugann þar sem helstu miðlar í kvikmyndaiðnaðinum vestra hafa fjallað um velgegni myndarinnar, það hefur gefið okkur byr í seglin á hárréttum tíma" bætir Kjartan við.

 

Vaktin er vinsælasta og mest verðlaunaða íslenska sjónvarpsefni síðustu ára og hefur sett ný viðmið í framleiðslu leikins efnis.  Þáttunum sem eru orðnir 30 talsins talsins var leikstýrt af Ragnari Bragasyni.

 

Sagafilm er stærsta sjálfstæða framleiðslufyrirtæki landsins á sviði sjónvarpsþáttagerðar, sjónvarpsauglýsinga, kvikmyndagerðar, viðburða og efnis fyrir nýmiðla.  Sagafilm á og rekur tækjaleiguna Luxor og viðburðafyrirtækið SagaEvents.

 

Published: 15.01.2010 11:27


Leita