Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Fangavaktin

Hróður Georgs Bjarnfreðarsonar og félaga er farinn að berast út fyrir landsteinana. Vinsældir Vaktarseríanna hafa vart farið framhjá nokkrum manni og viðtökurnar það góðar að erlend dreifingarfyrirtæki og sjónvarpsstöðvar hafa verið að sýna þáttaröðunum áhuga, bæði til sýninga og endurgerðar fyrir erlenda markaði

YLE, ríkissjónvarp Finnlands hefur tryggt sér sýningarréttinn á Nætur, Dag og Fangavakt í gegnum alþjóðlega dreifingarfyrirtækið ShineReveille sem dreifir þáttum á borð við The Office, Biggest Loser, Tudors og Ljótu Betty sem ættu að vera íslenskum sjónvarpsáhorfendum að góðu kunnir.

 YLE er fyrsta alþjóðlega sjónvarpsstöðin sem tryggir sér sýningarrétt á Vaktarseríunum eftir að hafa hrifist af Dag og Næturvakt.  Þess má geta að stöðin keypti allar þrjár seríurnar til sýninga að Fangavaktinni óséðri þar sem þeir vildu verða fyrstir að kökunni.

 Finnska Ríkissjónvarpið var stofnað árið 1926 og er með 4 sjónvarpsstöðvar og 6 útvarpsstöðvar á sínum snærum auk vefmiðla.  Skv. tölum frá 2008 horfa tæplega 50% Finna á sjónvarpsstöðina YLE TV1  á hverjum degi og nýtur stöðin mestrar hylli sjónvarpsstöðva í landinu.  Ekki er ljóst hvenær YLE byrjar að sýna þættina en það verður spennandi að sjá hvort kolsvartur húmor Vaktanna á jafnvel uppá pallborðið hjá frændum okkar FInnum eins og Íslendingum.

Vaktin er vinsælasta og mest verðlaunaða íslenska sjónvarpsefni síðustu ára og hefur sett ný viðmið í framleiðslu leikins efnis.  Þáttunum sem eru orðnir 30 talsins talsins var leikstýrt af Ragnari Bragasyni.

Published: 18.12.2009 11:49


Leita