Síðustu dagar heimskautsins
Sagafilm er nú með nýja heimildamynd í þróun og fjármögnun. Myndin ber vinnutitilinn “Síðustu dagar heimskautsins”- og verður hún eins konar portrait af íslenska ljósmyndaranum Ragnari Axelssyni, eða RAX.
Fáir ljósmyndarar hafa valið að einbeita sér að hinu kalda Norðri
í verkum sínum. “Andlit Norðursins” hafa verið viðfangsefni RAX
síðustu 25 ár og á þeim tíma hefur hann ferðast um Ísland,
Grænland og Færeyjar og sótt þangað efnivið í ótrúlega
magnaðar myndir. Allar eiga það sameiginlegt að þær sýna
mjög vel samspil manns og náttúru og sýna hnignandi lífshætti í Norðri.
Við ætlum að fylgja RAX eftir þar sem hann fer og myndar viðfangsefni
sem hann hefur sinnt af mikilli natni undanfarin 25 ár. Við munum
heimasækja vini hans, sem eru bændur í Landmannalaugafrétt, og
svo grænlenska ísbjarnarveiðimenn sem nú horfa fram á nýja tíma.
Þetta verður einstök 90 mínútna mynd um ótrúlegan ljósmyndara
þar sem við náum að sameina það að fylgjast með vinnu hans og
verkum undanfarna áratugi og skynja í gegnum list hans hvernig
lífshættir á Norðurslóðum eru að breytast meðal annars vegna
hlýnunar jarðar.
Heimildamyndin var kynnt á fjármögnunarmessunni Below Zero
í Tromsö í janúar og á HotDocs í Toronto í Kanada í maí 2009.
Mikill áhugi er á þessari mynd og eru samningar í vinnslu við amk.
sex alþjóðlegar sjónvarpsstöðvar um meðframleiðslu og sýningu.
Áætluð frumsýning er haustið 2010.
Published: 29.05.2009 13:37