Heiti síðu
Myndgerð mússík
Framleiðsla tónlistarmyndbanda fyrir hefðbundna dreifingu er yfirleitt ekki talinn sérlega ábatasamur.
Oft á tíðum er litið á gerð tónlistarmyndbandsins sem góða æfingu fyrir leikstjóra og aðra þá sem að verkinu koma, æfingu sem gerir þeim fært að segja sögu á annan hátt en nýtist við gerð auglýsinga eða sjónvarpsþátta.
Sum þeirra tónlistarmyndbanda, sem fela sig á hillum Sagafilm eru hreinar perlur tónlistarsögunnar, þar á meðal eru Sykurmolarnir, Mezzoforte og sjálfur Gleðibankinn. Nýjustu tónlistarmyndböndin úr smiðju starfsmanna Sagafilm hafa svo verið tilnefnd til ýmissa verðlauna ár eftir ár.

Quarashi - Payback![]() "Við erum sveitin, sem skapaðist í tóminu en hlustum á heiminn og framleiðum svo tónlist", segir Sölvi Blöndal, tónlistarmaður og stjórnandi hljómsveitarinnar Quarashi. |
Crazy bastard![]() Snarvitlausir töffarar vaða uppi í tónlistarmyndbandinu Crazy bastard í leikstjórn þeirra Samúels og Gunnars. |
If, Land og synir![]() Tónlistarmyndbandinu If er leikstýrt af Samuel og Gunnari. |
Hjálpum þeim![]() Tónlistarmyndbandið Hjálpum þeim er framleitt í tengslum við söfnun vegna fórnarlamba jarðskjálfanna í Pakistan árið 2005. |
Mugison - A little trip to heaven![]() Mugison er meðal þeirra listamanna okkar, sem ef til vill gæti orðið næsta alþjóðlega stjarna þjóðarinnar. |
Christina - Surfing the air![]() Í tónlistarmyndbandinu Surfing the air er tónlistin samofin íslenskri náttúru á einstakan hátt. |
Maria Mena - You're the only one![]() María Mena var nýjasta greinin á sölulista Sony Music í Noregi, þegar menn þar á bæ tóku ákvörðun um að Ísland skyldi verða bakgrunnur tónlistarmyndbandsins You´re the only one. |






