Heiti síðu
Sjónvarpsframleiðslan
Sagafilm er án efa öflugasta fyrirtæki Íslands, þegar kemur að framleiðslu efnis fyrir sjónvarp í mestu hugsanlegum gæðum, hvort heldur er tæknilega eða hvað varðar efnistök. Síðast liðna þrjá áratugi hefur fyrirtækið framleitt efni fyrir íslensku stöðvarnar í öllum efnisflokkum.
Framleiðendur og leikstjórar/upptökustjórar Sagafilm búa yfir víðtækri reynslu frá heimamarkaðnum en hafa einnig flutt inn margvíslega reynslu og hugmyndir eftir áratuga vinnu á erlendum mörkuðum. Starfsmenn Sagafilm í sjónvarpsiðnaðinum hafa staðið fyrir flóknustu útsendingum og hafa einnig verið frumkvöðlar á sviði heimatilbúinna hugmynda.
Sagafilm er eina framleiðslufyrirtæki landsins, sem hefur reynslu af að sníða erlend "sjónvarpsformöt" að íslenska markaðssvæðinu. Þar sem oft á tíðum þarf að taka tillit til annars vegar rétthafa og svo einstakra viðhorfa íslenskra áhorfenda. Meðal þeirra "formata" sem framleidd hafa verið fyrir heimamenn eru: Idol stjörnuleit, Ástarfleyið, Íslenski piparsveinninn, Það var lagið, Allt í drasli og Hver vill vinna milljón?
Hjá Sagafilm snýst allt um framleiðslu og markmiðið er að þjóna heimamarkaðnum af fullri trúmennsku og þá gildir einu hvort um er að ræða sjónvarpsstöðvar, símafyrirtæki eða önnur útgáfu- og veitufyrirtæki í stafrænum skemmti- og upplýsingaiðnaði. Sagafilm hefur ávallt að leiðarljósi að gæði efnisins muni, þegar upp er staðið auka tekjur og viðskiptavild þeirra sem versla við okkur. Það eru fyrst og fremst neytendurnir og markaðurinn, sem njóta munu góðs af vönduðum vinnubrögðum, sem eru aðalsmerki Sagafilm.
Með öflugri þróunardeild er Sagafilm ávallt í forystu þegar kemur að nýjungum, hvort sem um er að ræða efnistök eða tækni. Einnig hér skipar viðskiptavinurinn ávallt fyrsta sætið.
Samband Sagafilm og viðskiptavina fyrirtækisins er bundið gagnkvæmri virðingu og trausti. Íslenskur, stafrænn skemmti- og upplýsingaiðnaður þarf á þjónustu Sagafilm að halda til að allir aðilar markaðarins geti notið ríkulegrar uppskeru.

Í FRAMLEIÐSLU

TILBÚIÐ EFNI
Fagur fiskur í sjó![]() Fagur fiskur í sjó er sjónvarpsþáttur um fiskmeti og matreiðslu á því. Í hverjum þætti er fjallað um eitt þema eða hráefni eins og t.d. humar, skelfisk, chili, fiskisúpur, þorsk, sushi, lax og eða silung. Sumt hráefni er týnt, veitt eða sótt og það svo verkað og eldað. Sveinn Kjartansson kokkur sér að mestu um eldamennsku og saman bjóða þau, hann og Áslaug Snorradóttir annað hvort til veislu eða færa fólki fiskveislu heim. |
Hlemmavideó![]() Siggi Hlemm erfir videóleigu eftir föður sinn sem lést á dularfullan hátt. Að reka videóleigu er ekki endilega stærsta áhugamál Sigga, en hægt og rólega fer hann að kunna að meta það. Sérstaklega þar sem í því leynist leið til að sinna því sem hann hefur alltaf dreymt um. Að gerast einkaspæjari. |
Fangavaktin![]() Í fangavaktinni fylgjumst við með þríeykinu, sem flestir ættu að vera farnir að kannast við, á leið í fangelsi. Georg og Daníel eru að hefja afplánun sína fyrir þátt sinn í dauða hótelstjórans og fyrrverandi yfirmanns þeirra, Guggu. Ekki líður á löngu fyrr en Ólafur bætist í hópinn fyrir sakir sem Georg á að sjálfsögðu þátt í að klína á hann. Stórskostlegir atburðir henta þá félagana á meðan á dvöl þeirra á bak við lás og slá stendur. Einnig fáum við að kynnast mörgum nýjum persónum sem spila stór hlutverk í þeirra lífi á meðan þeir afplána dóminn. |
Hæðin![]() Lífstíls og hönnunarþáttur í umsjón Gunnlaugs Helgasonar þar sem fylgst er með pörum innrétta og hanna nokkur raðhús. |
Réttur![]() Réttur er fyrsta íslenska réttardrama sem framleitt hefur verið. |
Dagvaktin![]() Dagvaktin varð að einni vinsælustu sjónvarpsseríu íslands með ógleymanlegum persónum. |
Bandið hans Bubba![]() Bandið hans Bubba er 13 þátta sería sem fjallar um leit Bubba Morthens að hæfileikaríkum rokksöngvara. |
Svartir Englar![]() Svartir Englar, glæpasería, sýnd við gríðarlegar vinsældir í íslensku sjónvarpi. |
Innlit Útlit![]() Innlit Útlit, lífstílsþáttur með meiru. |
Næturvaktin![]() Þáttaröðin þar sem saga Georgs, Daníels og Ólafs Ragnars hófst. |
Pressa 2![]() Önnur þáttaröð Pressu sló áhorfsmet þegar hún var sýnd á Stöð 2 sem vinsælasta íslenska dramasería sem stöðin hefur hingað til sýnt. |
Latibær Action time![]() Sagafilm tók höndum saman með Latabæ og framleiddi með þeim 26 nýja þætti. |
Borgarilmur![]() Ein ástsælasta leikkona landsins, Ilmur Kristjánsdóttir bregður hér á leik í nýjum ferðaþætti þar sem hún skoðar 8 heimsborgir á sinn hátt. |
Heimsendir![]() HEIMSENDIR kemur úr smiðju sömu manna og færðu okkur Vaktaseríurnar sem er vinsælasta sjónvarpsefni sem framleitt hefur verið á Íslandi. Í þessari einstöku seríu kynnumst við nýju persónugallerýi; sjúklingum og starfsmönnum á afskekktri geðdeild árið 1992. Aðalsöguhetjan Einar, leikinn af Halldóri Gylfasyni, stendur fyrir byltingu og sjúklingarnir taka yfir hælið með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. |













