Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Kvikmyndir

Sagafilm stefnir að framleiðslu nokkurra kvikmynda í fullri lengd á næstu misserum.

Myndirnar eru á mismunandi framleiðslustigum, sumar leita enn fjármagns en aðrar eru lengra komnar, þar á meðal má nefna Kalda slóð sem frumsýnd var í dessember 2006.

Sagafilm tók þátt í íslenska kvikmyndavorinu á áttunda áratugnum og framleiddi kvikmyndina Húsið í leikstjórn Egils Eðvarssonar árið 1983. Fyrirtækið hefur síðan komið að framleiðslu fleiri kvikmynda en með fyrirsjáanlegri grósku í íslenskri kvikmyndagerð ætlar Sagafilm að hasla sér völl enn á ný og taka forystuna. Sagafilm hefur sem fyrirtæki styrkinn og stærðina til að fást við stór verkefni á borð við framleiðslu íslenskra kvikmynda og starfsfólk tengt fyrirtækinu býr yfir afburðareynslu á þessu sviði. Því er það einlæg ósk forystumanna Sagafilm að fyrirtækið geti lagt sitt af mörkum til eflingar íslenskri kvikmyndagerð.

Köld slóð

Kvikmyndin Köld slóð var frumsýnd í desember 2006. Vinna við myndina á tökustað hófst í febrúar 2006 og stóðu tökur yfir í 6 vikur.
» Meira

Og Guð skapaði morð

Kvikmynd í fullri lengd, sem er á framleiðsluáætlun ársins.
» Meira

Bjarnfreðarson

Átakasaga sem nær yfir hálfa öld. Eilífðarstúdentinum Georgi Bjarnfreðarsyni hefur verið sleppt úr fangelsi. Hann er þó enn fangi eigin fortíðar.
» Meira


Leita