Heiti síðu
Heimildamyndir - bestu í bransanum!
Sagafilm hefur undanfarin 30 ár framleitt heimildamyndir af öllum tegundum og lengdum og um ólík málefni. Eitt eiga þessar myndir sameiginlegt, þær eru gerðar af vandvirkni og trúmennsku gagnvart viðfangsefninu.
Heimildamyndirnar eru frá einni stakri mynd til lengri þáttaraða og má þar m.a. nefna skráningu Sagafilm á framkvæmdunum við Kárahnjúka. Hér fylgir Sagafilm og skráir á myndræna sögubók þjóðarinnar umdeildar aðgerðir á sex ára tímabili. Þáttaröðin er unnin fyrir Landsvirkjun og sýnd á RUV en er um leið einstök heimild varðveitt fyrir komandi kynslóðir.
Sagafilm hefur einnig framleitt heimildamyndir, sem farið hafa í drefingu víðs vegar um heim og vekja þar með athygli á menningarheimi og sögu íslendinga.

Verk í vinnslu
Harpa - Nýja ráðstefnu og tónlistarhús íslendinga.![]() Sagafilm vinnur nú að framleiðslu á stórri heimildamynd um byggingu tónlistar-og ráðstefnuhúss í Reykjavík. Húsið hefur fengið nafnið HARPA og er opnun fyrirhuguð í maí 2011.. |
ÍSLENSKA ALÞJÓÐABJÖRGUNARSVEITIN![]() Sagafilm vinnur nú að heimildaþáttaröð í þremur hlutum um íslensku björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Um er að ræða gríðarlega yfirgripsmikið verkefni sem hefur verið í vinnslu í þrjú ár. Í þáttaröðinni fylgjumst við þeim einstaklingum sem eru í forystu í íslenskum björgunarmálum. |

Í dreifingu
Andlit Norðursins![]() Það þekkja nánast allir landsmenn ljósmyndir Ragnars Axelssonar, eða RAXA. Hann hefur verið einn helsti ljósmyndari Morgunblaðsins frá árinu 1979. |
Íslenska Alþjóðabjörgunarsveitin![]() Í september 2009 barst íslensku alþjóðabjörgunarsveitinni útkall frá eyjunni Thule í Norðurhöfum. Jarðskjálfti upp á 7,3 á Richter skala hafði gjöreyðilagt borgina CAVE TOWN þar sem 1, 5 milljón manna bjuggu. Fyrir lá beiðni frá Sameinuðu Þjóðunum um aðstoð í skaðalandi og brást íslenska sveitin strax við. |
Loftleiðir![]() Sagafilm er að ljúka gerð heimildarmyndar um sögu Loftleiða. Myndin rekur sögu uppvaxtaráranna og segir frá því hvernig Loftleiðir breyttist úr litlu flugfélagi í fyrsta íslenska viðskiptastórveldið, sem teygði arma sína út fyrir landfræðileg mörk eyríkisins Íslands. |
Síðasti dansinn![]() Síðasti dansinn, sem hlotið hefur Edduverðlaun í flokki heimildarmynda, segir frá stríðinu um þorskinn á milli Íslendinga og Breta. |
Háseta vantar á bát![]() Háseta vantar á bát er einstök heimildarmynd, sem segir frá skuggalegu tímabili í sögu sjávarútvegsins, sem flestir vilja helst gleyma. |
Kárahnjúkar![]() Virkjunarframkvæmdir við Kárahnjúka skiptir þjóðinni í tvennt. |







