Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Köld slóð

Kvikmyndin Köld slóð var frumsýnd í desember 2006. Vinna við myndina á tökustað hófst í febrúar 2006 og stóðu tökur yfir í 6 vikur.

Sagan:
Köld slóð er fyrst og fremst sakamálasaga með blaðamanninn Baldur í aðalhlutverki, en hann svífst einskis til að grafa fram dularfulla og tvísýna atburði.

Köld slóð hefst á því að öryggisvörður finnst látinn í einangraðri virkjun á hálendi Íslands.
Fyrst virðist vera um slys að ræða og Baldur hefur því lítinn áhuga á fréttinni. Það breytist þó snarlega þegar móðir hans segir honum að látni maðurinn sé pabbinn, sem hann aldrei kynntist. Nú er forvitni Baldurs fyrir alvöru vakin og hann ákveður að komast á snoðir um hvað raunverulega leynist í klakaböndunum á þessum afvikna stað.

Baldur heldur upp á hálendið sem nýr öryggisvörður og tekur við starfi af þeim látna. Fljótlega eftir komuna í virkjunina, kemst hann að raun um að ekkert er sem sýnist. Fólkið í virkjuninni lifir í einangruðu samfélagi og er andsnúið ókunnugum. Eitt af því sem Baldur kemst fljótlega á snoðir um er að á staðnum fer fram ábatasöm en ólögleg hliðarbúgrein. Koma Baldurs og forvitni setur allt í hættu.
En ekki nóg með það. Baldur, sem er rannsóknablaðamaður af Guðs náð grefur fljótlega upp gamalt glæpamál og setur þar með líf sitt fyrir alvöru í hættu.

Flokkur: Kvikmynd
Upptökuform: Digital beta
Framleiðslutími: Febrúar 2006
Kostnaðaráætlun: 1.200.000 EUR
Leikstjóri: Björn Br. Björnsson
Framleiðendur: Kristinn Þórðarson & Magnús V. Sigurðsson

Um leikstjórann:
Björn Br. Björnsson nam grafíska hönnun við Myndlista og handíðaskóla Íslands.
Að loknu prófi hóf hann störf sem grafískur hönnuður og síðar sem listrænn stjórnandi
hjá auglýsingastofunni Gott fólk, áður en hann snéri sér að leikstjórn auglýsinga.

Björn er í dag einhver viðurkenndasti auglýsingaleikstjóri landsins. Honum hafa áskotnast fjölmörg verðlaun og viðurkenningar og hefur sex sinnum unnið til verðlauna fyrir auglýsingu ársins og fimm sinnum fyrstu verðlaun fyrir auglýsingaherferð ársins. Auk þess að leikstýra auglýsingum hefur Björn leikstýrt heimildamyndum og leiknu efni fyrir sjónvarp.

Björn Björnsson hlaut Edduverðlaun fyrir leikna heimildamynd, Sannar sakamálasögur og einnig Edduverðlaun síðasta árs fyrir sína fyrstu leiknu sjónvarpsmynd, en sú er byggð á Njálssögu.

Björn Björnsson er formaður Félags íslenskra kvikmyndagerðarmanna og situr í stjórn Kvikmyndaráðs Íslands.
Köld slóð er hans fyrsta leikna mynd í fullri lengd.

Videos:
Cold Trail, teaserCold Trail Theatrical Trailer

Leita