Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Næturvaktin

Þáttaröðin þar sem saga Georgs, Daníels og Ólafs Ragnars hófst.

Sögusvið þessarar nýju sjónvarpsseríu, er lítil bensínstöð á Laugaveginum; tíðindalítil smáveröld sveipuð kaldri reykvískri vetrarnótt. Í þessu litla samfélagi fylgjumst við með hvernig hinn venjulegi almúgamaður tekst á við hversdagsleikann og lífsbaráttuna. Stór hluti tímans fer í að bíða stundunum saman eftir næsta viðskiptavini og sá tími er meira en nægur til að koma sér í vandræði.

Á bensínstöðinni ræður ríkjum hinn fertugi vaktstjóri Georg Bjarnfreðarson (Jón Gnarr). Georg er bitur kommúnisti með 5 BA gráður og sterkar skoðanir á tilverunni, en tímann reynir Georg að nota til ráðagerða um hvernig sé best að lokka viðskiptavini inn á bensínstöðina yfir nóttina. Draumur Georgs er að ná að toppa dagvaktina í sölu, en það er erfitt þegar helsta traffíkin er yfir daginn.

Það sem stendur í vegi fyrir árangri Georgs er starfsfólk sem á erfitt með að fylgja heimatilbúnum reglum hans. Fremstur í flokki er Ólafur Ragnar (Pétur Jóhann Sigfússon) einfaldur og einlægur hnakki, sem á einstaklega auðvelt með að koma sér í klandur.

Nýr bensíntittur, fyrrverandi læknaneminn Daníel (Jörundur Ragnarsson), er ráðinn til starfa þegar sá fyrri, hrekkur upp af. Við það hefst "kalt" stríð milli Georgs og Ólafs Ragnars um yfirráð yfir Daníel.

 

 

Videos:
Naeturvaktin_1
Naeturvaktin_2
Naeturvaktin_3
Naeturvaktin_4

Leita