Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Hyundai Getz "Vegferð"

Auglýsingin "Road trip" eða "Vegferð" segir sögu þriggja stúlkna sem halda af stað í ferðalag sem leiðir þær um hálft Ísland. Með í farteskinu er að sjálfsögðu fjör og gleði og ekki spillir að fararskjótinn er bráðnýr Hyundai Getz, sem kemur þeim öruggt á áfangastað.

Auglýsingin var tekin upp á tveim dögum á fjölmörgum stöðum á landinu. "Vegferðin" liggur út frá Reykjavík og upp í Hvalfjörð, þar sem stoppað er við gömlu hvalstöðina. Næsti áfangastaður er Snæfellsnes og þaðan liggur leið stúlkna og bíls norður á bóginn í Varmahlíð, Sauðárkrók og höfuðstað norðurlands, Akureyri.

Seinni upptökudaginn héldu stúlkurnar, sem allar eru módel frá Eskimó Models, leið sinni áfram í gegnum Vaglaskóg, Mývatn og loks að Ásbyrgi. Allt staðir, sem endurspegla lífsgleði og fegurð.

Samúel og Gunnar leikstýrðu fyrir B&L, en Víðir Sigurðsson mundaði myndavélina.

Videos:
Hyundai_Getz_Roadtrip_40sek

Leita