Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Tuborg tónar

Tuborg hefur sinn eigin hljóm samkvæmt nýrri auglýsingu, sem Sagafilm hefur nýverið framleitt um bjórinn sívinsæla, Tuborg.

Auglýsingin hefur hlotið nafnið Söngvarinn og er tekin upp í Félagsgarði, sem er félagsheimili Ungmennafélagsins Drengs í Kjós. Staðurinn var áður miðpunktur félagslífsins og veisluhalda á svæðinu og auglýsingin bregður upp mynd af tíð, sem er okkur horfin og hvað getur gerst þegar Tuborg söngvarinn breytir um stíl. Hljómsveitin Úlpa með söngkonunar Jöru í fararbroddi leikur fyrir veislugesti, sem eru rúmlega 40 talsins og allir yfir sjötugt.

Við komum inn í hefðbundna veislu, gæti verið fermingarveisla með mörgum veisluréttum. Maturinn var eldaður á staðnum fyrir upptökuna. Gestirnir eru í sælkerastuði og sinna engu öðru en matnum, láta tónlistina alveg fram hjá sér fara. Með smá hjálp frá Tuborg heppnast söngvaranum að hleypa fjöri í veisluna og andrúmsloftið breytist til hins óvænta.

Melissa Silverman er leikstjóri og Víðir tökumaður.

Videos:
Tuborg "Singer"

Leita