Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Varðan, Landsbankinn

Þeir Samúel og Gunnar hafa lokið við nýja auglýsingu fyrir Vörðuna, sem er vildarþjónusta Landsbankans.

Í Vörðunni njóta viðskiptavinir Landsbankans heildarviðskipta sem felst í betri yfirsýn yfir fjármálin, persónulegri ráðgjöf og þjónustu, auk fríðinda. Auglýsingastofan Gott fólk var í forsvari fyrir auglýsingunni, sem var mjög viðamikil í upptöku.

Staðsetningar eru fjölmargar og þurfti að kalla til heilan skara aukaleikara til að fylla sali eins og Þjóðleikhúsið eða heila kirkju. Andblærinn gefur til kynna að viðskiptavinir Vörðunnar njóti hins besta sem völ er á.

Karl Óskarsson var tökumaður og Arnbjörg Hafliðadóttir (Abbý) framleiðandi.

Videos:
Vardan, Landsbankinn

Leita