Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Umferðarstofa, Árekstur

Við erum næstum handviss um að þessi sjónvarpsauglýsing sé sú fyrsta sem tekin er upp á farsíma á Íslandi.

Umhverfið er stórbæjarlífið um miðja nótt og ekkert lát á gleðinni hjá unga fólkinu sem ekur um bæinn, í leit að meira fjöri. Herlegheitin eru tekin upp á vídeósímann og allt leikur í lukkunnar velstandi.

En aðgæsluleysi, áfengi og símaleikurinn tekur yfirhöndina í stað aksturs og öruggrar ferðar heim á leið.

Samúel og Gunnar leikstýrðu. Rafn Rafnsson var tökumaður og Eiður Birgisson framleiðandi fyrir Hvíta Húsið og Umferðarstofu.

 

Videos:
Umferdarstofa, crash

Leita