OLÍS - HM fjölskyldan
Heimsmeistarkeppnin í fótbolta er á næsta leiti og OLÍS búðirnar munu bjóða upp á næstum allt sem þarf til að fjölskyldan geti notið sín fyrir framan skjáinn og fylgst með leikjunum.
HM fjölskyldan er í leikstjórn Gulla Magga og er auglýsingin framleidd í mismunandi útgáfum. Handrit er frá auglýsingastofunni Himinn & Haf og sögurnar fjalla um fjölskylduna, sem er að undirbúa öflugt sjónvarpsgláp á meðan á heimsmeistarakeppninni stendur. Og þá eru OLÍS búðirnar, fullar af varningi, eins og himnasending fyrir þá sem hafa lítinn tíma.
|