Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Og Guð skapaði morð

Kvikmynd í fullri lengd, sem er á framleiðsluáætlun ársins.

Myrkar hliðar mannlífsins rammaðar inn í bjartar sumarnætur norðursins þar sem söguþráðurinn berst um hálendi Íslands og vefst inn í margbreytilegt mannlíf borgarinnar.

Miðaldra kona er myrt og dauði hennar látin líta út sem sjálfsmorð. Dóttir konunnar hefur sjálfstæða rannsókn á dauða móðurinnar og lífi hennar í leit að sakamanninum. Hún kemst á snoðir um meira en hana hafði órað fyrir, þar á meðal áratuga gömul leyndarmál, misnotkun og aðstæður, sem leiða hana á braut réttra foreldra.

Kristrún er stödd uppi á jökli við upptökur á heimildarmynd þegar hún fær símtal sem breytir lífinu svo um munar. Bróðir hennar, Þór, er í símanum og færir þær fréttir að móðir þeirra systkina, Hildur, hafi framið sjálfsmorð. Kristrún flýtir sér í bæinn og kemur að bróður sínum og mágkonu, sem eru önnum kafin við að fara í gegnum eigur móðurinnar. Það er hverjum ljóst að systkinunum kemur ekki vel saman og Þór
reynir að skella skuldinni á dauða móðurinnar á systur sína. Nágrannarnir hafa í óspurðum fréttum látið það berast að Kristrún hafi heimsótt móður þeirra nóttina áður og þær hafi rifist heiftarlega. Heyrst hafi til Kristrúnar, þar sem hún hótaði móðurinni öllu illu og þar á meðal að hún myndi ganga af henni dauðri. Kristrún segist nú bara hafa sagt sisvona og ekki hafa meint neitt með orðbragðinu.

Kristrún er þrungin sektarkennd og heldur í líkhúsið þar sem hún krefst þess að fá að sjá móður sína látna. Síðar sama dag finnur hún bréf frá föður sínum, sem hún hefur aldrei kynnst. Bréfið er stílað á móðurina og þar segist faðirinn vera á leið til Íslands eftir meira en þrjátíu ára fjarveru. Ástæða endurkomunnar er bréf, sem Kristrún hafði sent honum og var uppspretta rifrildis þeirra mæðgna.

Kristrún hefur átt við andleg veikindi að stríða og hefur verið inn og út af stofnunum. Af þeirri ástæðu hefur hún misst forræði yfir dóttur sinni, Birtu sem er 13 ára.
Þær mæðgur eru þó í þokkalega góðu sambandi og Birta verður fermd innan skamms.

Tegund: Drama, kvikmynd í fullri lengd
Format: 35 mm
Framleiðslutími: Sumar 2006
Fjárhagsáætlun: 1.200.000 EURO
Samframleiðandi: Kvikmyndastofnun Íslands
Leikstjóri: Ragnar Agnarsson
Framleiðendur: Kristinn Þórðarson og Magnús Viðar Sigurðsson


Leita