Gevalia, "Los Gevalios"
Opnaðu nýjan pakka af Gevalía kaffi og ilmurinn ber eitthvað nýtt og óvænt með sér.
Að þessu sinni fyllist loftið suðrænum ilmi og tónlist. Ný röð auglýsinga fyrir Gevalía í þrem afbrigðum, þar sem sviðið er heimilið, sumarhúsið á myrkri og kaldri vetrarnótt og svo vinnustaðurinn. Um leið og kaffipakkinn er opnaður birtist óvænt hópur suðrænna og glaðlegra tónlistarmanna, sem auðga augnablikið með því litla óvænta, sem Gevalía er svo þekkt fyrir.
|