Glitnir, velgengni
Glitnir hóf umfangsmikla auglýsingaherferð í kjölfar nafnabreytingar Íslandsbanka í Glitnir.
SagaEvents sá um að skipuleggja innanbúðar átak bankans, þegar 1200 starfsmenn söfnuðust saman til að kynnast nýja vörumerkinu. Í tengslum við nýtt nafn tók auglýsingadeildin svo á hendur að framleiða nýjar sjónvarpsauglýsingar undir formerkinu velgengni. En hvað er velgengni? Handritið er skrifað af Hvíta húsinu og byggir á könnun, þar sem 3000 manns af báðum kynjum og á öllum aldri veltu fyrir sér spurningunni, hvað er velgengni? Hljómar leiðinlegt eða hvað? En með virkilega góðu handriti og frábærri leikstjórn dansar hugtakið velgengi á mörkum hins óraunverulega. Velgengni getur verið óskin um að eiga jeppa og myndin sýnir gamlan Landrover. Eða það getur verið velgengni að hafa tíma til að lesa - á klósettinu. Velgengni er skemmtilega hröð auglýsing og gefur áhorfandanum öðruvísi sýn. Þar með fellur hugmyndin sérlega vel að nýju vörumerki og vitund viðskiptavinarins.
|