Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Dælan, nýjar auglýsingar Símans

Dælan getur þýtt margt; að tala sleitulaust eða að dæla niður.

Hér er síðari merkingin notuð til að lýsa nýjung frá Símanum, sem auðveldar niðurhal fyrir GSM-síma.

Framleidd var röð auglýsinga, sem sýna hversu auðvelt er að vera með í Dælunni, hvernig aðild veitir þægindi í niðurhali á öllu sem þarf fyrir nútímaleg samskipti á símanum. Hægt er að senda hóp SMS, skiptast á MMS skilaboðum, skipuleggja tónlistarniðurhal, hringitóna og aðrar aðgerðir, sem áður þurfti mörg forrit til.

Sigurður Freyr framleiddi auglýsinguna í mörgum útgáfum. Auglýsinarnar voru teknar upp yfir eina helgi á skólasetrinu Laugavatni, þar sem nördagengi frá níunda áratugnum gerði innrás.

Auglýsingastofan EnnEmm var ábyrgðaraðili Símans. Handrit skrifaði Þorsteinn Guðmundsson og Samúel og Gunnar leikstýrðu.

Videos:
Dælan, group SMS
Dælan, orðabók
Daelan, dans
Daelan, computer

Leita