Tekist í hendur
Sagafilm framleiddi á síðasta ári nýja, stóra ímyndarauglýsingu fyrir Landsbankann.
Auglýsingin hefur hlotið nafnið "Tekist í hendur" og flytur boðskap um traust, trúnað, samskipti og gagnkvæma ábyrgð. Myndgerðin sýnir viðskiptavini á öllum aldri undir mismunandi kringumstæðum, sem takast í hendur. Upptökur fóru fram í 6 löndum Evrópu í desember. Tekið var upp í Luxembourg, Spáni, Frakklandi, Bretlandi og Hollandi. Upptökustaðirnir voru mjög mismunandi svo sem götuhorn, íþróttaleikvangar, veitingahús, búðir, öngstræti og að sjálfsögðu útibú Landsbankans í hverju landi. Notast þurfti við fjölda aukaleikara og sá starfsfólk Sagafilm um að útvega allt það fólk að undanskildum leikurum í Frakklandi og á Spáni. Þar hlupu innlend fyrirtæki undir bagga og útveguðu aukaleikara. "Tekist í hendur" er viðamesta auglýsing, sem framleidd var af íslensku fyrirtæki árið 2005. 15 manna íslensk áhöfn var meira og minna á ferðinni í 18 daga til að ná öllu í kassann. Auglýsingastofan Gott fólk með þá Gary Wake, Jón Árnason og Sverri Briem voru í forsvari fyrir auglýsingunni og fyrir hönd Landsbankans var Viggó Ásgeirsson ábyrgðarmaður. Framleiðandi: Magnús Viðar Sigurðsson Framleiðslustýring: Gagga (Rannveig Jónsdóttir) Kvikmyndun: Ágúst Jakobsson Leikstjóri: Þór Ómar Jónsson
|