Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Crazy bastard

Snarvitlausir töffarar vaða uppi í tónlistarmyndbandinu Crazy bastard í leikstjórn þeirra Samúels og Gunnars.

Þegar fyndnustu strákar Íslands ákváðu að verða heimsfrægir á landinu kalda með því að búa til tónlistarmyndband, þá var einasta leiðin að þeirra mati að gera stólpagrín að öllum bransanum.

Eins og sjónvarpsáhorfendur vita taka Strákarnir ekkert alvarlega og sú er einnig raunin þegar kemur að frumraun þeirra á tónlistarsviðinu.

Jón Bjarni Guðmundsson framleiddi myndbandið fyrir PoppTV og það hlaut Edduverðlaunin árið 2005, sem besta tónlistarmyndband ársins.

Videos:
Crazy bastard

Leita