Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Hjálpum þeim

Tónlistarmyndbandið Hjálpum þeim er framleitt í tengslum við söfnun vegna fórnarlamba jarðskjálfanna í Pakistan árið 2005.

Endurútgáfan markar einnig 20 ára sögu, en árið 1985 söfnuðust íslenskir listamenn saman og fluttu þennan óð, þá til styrktar sveltandi þjóð í Eþíópíu.

Axel Einarsson og Jóhann G. Jóhannsson eiga heiður af lagi og texta, en útsetningin er í nýjum búningi. Stjörnur íslensks tónlistarlífs komu svo hver af annarri og sungu sína laglínu. Upptökur á myndbandinu fóru fram við frumstæðar aðstæður í hljóðveri á þeim skamma tíma sem hver og einn listamaður hafði til umráða fyrir hljóðupptökuna.

En mynd og lag vöktu athygli á söfnun til bágstaddra í Pakistan og fyrsta útgáfan seldist í platínu-upplagi. Söfnunarféð nam 10 milljónum króna og var afhent Hjálparstofnun kirkjunnar.

Sagafilm og starfsfólk, sem tengdist upptökunni gaf sína vinnu. Andri Thor Birgisson leikstýrði og framleiðandi var Maríanna Friðjónsdóttir.

Videos:
Hjálpum þeim, Help them

Leita