Mugison - A little trip to heaven
Mugison er meðal þeirra listamanna okkar, sem ef til vill gæti orðið næsta alþjóðlega stjarna þjóðarinnar.
Ragnar Agnarsson leikstýrði tónlistarmyndbandinu, sem er kynning á nýjustu kvikmynd Baltasar Kormáks, A little trip to Heaven. Mugison samdi tónlistina og í myndbandinu bregður fyrir stjörnum myndarinnar Forrest Whiteker og Juliu Stiles. Myndbandið er tekið upp í göngum virkjunar og sýnir listamanninn á endalausri ferð í iðrum jarðar.
|