Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Christina - Surfing the air

Í tónlistarmyndbandinu Surfing the air er tónlistin samofin íslenskri náttúru á einstakan hátt.

Lagið Surfing the air blandast fullkomlega og ýtir undir stórfenglega náttúru við suðurströnd Íslands. Upptökur fóru fram á sumardegi og sólin faldi sig kyrfilega á bak við skýin. Myndatakan er sveipuð dulúð og tónaflóð hafsins við Dyrhólaey nýtur sín út í ystu æsar.

Christina og framleiðandi hennar frá Sony, Ronnie, voru yfir sig hrifin og lofuðu að heimsækja Ísland aftur innan skamms. Og viti menn, Ronnie mætti með Maríu Menu til upptöku á öðru tónlistarmyndbandi nokkrum vikum síðar, sumarið 2004.

Ragnar Agnarsson leikstýrði, Besti var tökumaður og Magnús Viðar Sigurðsson, framleiðandi.

Videos:
Christina - Surfing the air

Leita