Maria Mena - You're the only one
María Mena var nýjasta greinin á sölulista Sony Music í Noregi, þegar menn þar á bæ tóku ákvörðun um að Ísland skyldi verða bakgrunnur tónlistarmyndbandsins You´re the only one.
Ragnar Agnarsson leikstýrði myndbandinu, sem vakti mikla athygli meðal annars á MTV og víðar. Upptökur fóru fram á tveim dögum og var tekið upp víðsvegar í Reykjavík. Marían Mena var lögð á bakið á hjólapall, sem hengdur var aftan í bíl og gaf það upptökunni sérstök og skemmtileg áhrif. Myndbandið og lagið náðu efstu sætum vinsældalistanna. Í Bandaríkjunum náði lagið inn á topp tíu listann og trónaði vikum saman í fyrsta sæti listanna í Noregi og á Íslandi.
|