Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Loftleiðir

Sagafilm er að ljúka gerð heimildarmyndar um sögu Loftleiða. Myndin rekur sögu uppvaxtaráranna og segir frá því hvernig Loftleiðir breyttist úr litlu flugfélagi í fyrsta íslenska viðskiptastórveldið, sem teygði arma sína út fyrir landfræðileg mörk eyríkisins Íslands.

Saga Loftleiða er samtvinnuð íslenska lýðveldinu, félagið var stofnað lýðveldisárið 1944. Andi frumkvöðlanna réð ríkjum lengi framan af og einstök samstaða og barátta starfsmanna fyrir vexti félagsins er rakin.

Í myndinni er sagt frá því hvernig Loftleiðir urðu fyrsta lággjaldafyrirtæki í flugi í heiminum. Þegar Loftleiðir ákváðu að brjóta ísinn og bjóða lág fargjöld yfir Atlantshafið varð hreinlega allt vitlaust. IATA-flugfélögin, sem flestöll voru ríkisrekin settu sig á móti verðstefnu Loftleiða, sem varð að pólitísku milliríkjamáli beggja vegna Atlantsála.

Loftleiðir voru frumkvöðlar í ferðamannaiðnaði Íslendinga og fyrirtækið var eitt hið fyrsta á landinu til að taka tölvutæknina í notkun.

Hugmynda og framkvæmdasemi frumkvöðlanna, sem einkenndi alla almenna starfsmenn Loftleiða, hafði ekki einungis afgerandi áhrif á flug til og frá Íslandi, heldur breytti þetta fólk ferðamáta almennings um víða veröld í það sem við þekkjum í dag.


Tegund: Heimildamynd í framleiðslu
Lengd: 60 min.
Format: Digibeta
Framleiðandi: Jón Þór Hannesson
Framkvæmdastjóri: Anna María Sigurjónsdóttir
Handrit: Steinar J. Lúðvíksson
Viðtöl: Guðjón Einarsson
Myndataka: Einar Árnason og fleiri


Leita