Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

Margmiðlun

Margmiðlunardeild Sagafilm er í örum vexti og fleiri forgangsverkefni á sviðinu auka á sérþekkingu starfsfólksins.

Fjölnota símar, Ipod sem spilar lifandi myndir, möguleikar á endalausum flutningi
og birtingu mynda á netinu, eru nýjar brautir sem litið er á í tengslum við þróun sérhvers verkefnis.

Ein hugmynd, margar útgönguleiðir.... er aðferð sem sérfræðingar Sagafilm nota til að gefa hverju verkefni mörg líf. Slíkt getur tekið yfir fyrirtækjakynningar í tengslum við ákveðna vöru og auglýsingaherferð, nýtingu á eldra efni eða nýsköpun á sviði dagksrárgerðar þar sem allir möguleikar eru teknir með frá byrjun.
Auglýsingar fyrir sjónvarp eða internet, notkun síma í skemmtana og upplýsingaskyni, DVD verkefni, vefgrafík og netmarkaðssetning ásamt "viral marketing" eru miðlunarleiðir sem Sagafilm hefur á valdi sínu. Meðal viðskiptavina okkar eru stærstu fyrirtæki landsins á sínu sviði, auglýsingastofur
og opinberar stofnanir.

Meðal sérstakra gagnvirkra verkefna eru m.a. Bubbi byggir, Dóra, Prinsessur og Konungur ljónanna fyrir DVD-kids. Verkefni sem eru þróuð og framleidd af 3-plús fyrir alþjóðamarkað á allt að 10 tungumálum í senn. Verðlaunatitlar 3-plús nýta gagnvirkni til hins ítrasta og hafa afurðir fyrirtækisins hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar, þar á meðal sem besti miðill fyrir börn og unglinga á upplýsingaöldinni.
Aðkoma Sagafilm að þessum flóknu nýsköpunarverkefnum felst m.a. í að hanna grafík, klippa, vinna hljóð og sinna tæknilegri útgáfu verkefnanna.


Leita