Klipping og hljóð
Tækjakosturinn er sá besti á landinu og fagmenn í úrvalsflokki skipa hvert rúm.
Þannig er öryggi viðskiptavinarins tryggt í hvívetna, hvort sem um er að ræða auglýsingu, dagskrárefni eða efni til dreifingar á öðrum miðlum. Húsakynni Sagafilm rúma fleiri Final Cut Pro klippisvítur en nokkur annar framleiðandi á Íslandi hefur yfir að ráða. 10 fullbúnar svítur þar sem mismunandi form eins og DV, SD, 2K, HDV og HD, leggja engan stein í götuna. Allar klippisvíturnar geta nýst til gróf eða fínklippingar. Að auki finnast 3 Avid-klippisvítur og sérhæfð DVD-svíta í deildinni. Allar einingarnar eru nettengdar yfir Xsan-net og því auðvelt að flytja efni frá einu rými til annars. Þannig myndast framleiðslukeðja, þar sem einfaldleikinn og hraðinn ræður ríkjum. Hljóðið gleymist ekki þegar kemur að fullvinnslu verkefnisins. 3 vinnsluver, öll búin Pro Tools tækjum og mönnuð hljóðmeisturum sem eru þekktir langt út fyrir landssteinana fyrir vönduð vinnubrögð. Starfsmenn, sem leyst hafa verkefni þar sem öðrum hafa fallist fullkomlega hendur. Hljóð og mynd renna saman í eina öfluga heild í meðförum manns og tækni.
|