Sagafilm

Fara i siduyfirlit

Heiti síðu

DVD-útgáfa

Sagafilm hefur komið sér upp fullkominni DVD-vinnslu og þar með er hægt að leysa hvaða verkefni sem er fyrir dreifingu á DVD, smá sem stór.

DVD er enn sem komið er einhver besta leið til að geyma, dreifa og nálgast stafrænar upplýsingar í fullum gæðum. DVD-diskurinn stendur þó á tímamótum og með tilkomu enn fullkomnari diska svo sem Blue Ray og HD-DVD er ljóst að formið og þekking viðtakanda á því er tryggt um fyrirsjáanlega framtíð. Sagafilm mun innan skamms
bjóða framleiðslu á hágæða DVD diskum, eða um leið og ljóst er hvort formið verður neytandanum kærast. En fram að því heldur Sagafilm áfram því verki sem hafið er.

Meðal stórra titla sem Sagafilm hefur framleitt á DVD má nefna m.a. Hafið, 101 Reykjavík og Sódóma. Einnig verkefni fyrir Breska Sendiráðið á Íslandi, Actavis og Háskóla Íslands. Þar sem DVD er einföld stafræn miðlun í bestu gæðum og hægt að spila diskinn bæði í tölvu og í sjónvarpi hefur það færst í vöxt að íslensk fyrirtæki nýti sér DVD dreifingu til markaðssetningar á vöru og markmiðum á fjölbreyttari og ítarlegri hátt en áður hefur tíðkast.

Starfsmenn Sagafilm eru sérlega stoltir yfir því að hafa tekið þátt í framleiðslu gagnvirkra titla fyrir DVD-Kids. Framleiðslu sem hefur hlotið margar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir gæði vörunnar. 3-Plús hefur þróað DVD-Kids og hér er DVD-tæknin nýtt til hins ítrasta.

Videos:
DVD kids

Leita