Heiti síðu
Auglýsingaframleiðslan
Sagafilm hefur staðið í framvarðarsveit íslenskra auglýsendaframleiðenda frá upphafi stofnunarfyrirtækisins árið 1978. Hágæða auglýsingar fyrir sjónvarp hafa alla tíð verið stærsti hluti framleiðslunnar.
Framleiðslulína Sagafilm er snurðulaus og eftir henni rennur endalaus straumur auglýsinga þar sem sérhæft starfsfólkið leggur sitt af mörkum svo hver og ein afurð verði sem verðmætust fyrir viðskiptavininn. Þess má geta að í janúar 2006 voru framleiddar 96 auglýsingar fyrir sjónvarp og eru þá t.d. frátaldar einfaldar auglýsingar fyrir kvikmyndahúsin og aðra aðila.
Framleiðendur og leikstjórar Sagafilm búa yfir umfangsmikilli og sérhæfðri reynslu sem tekur yfir bæði upptöku á filmu eða stafrænu formi. Hugmyndaauðgi og listrænir hæfileikar ásamt faglegri ögun einkennir leikstjóra, tökumenn, grafíska hönnuði, hljóðmeistara og klippara, sem og aðra sem koma að hverju verkefni.
Markmiðið er að viðskiptavinurinn gleðjist að verki loknu þegar hugmyndin sprettur fram sem fullbúin og arðsöm vara.
Þeir eru klárir og kaldir, agaðir og hugmyndaríkir, en fyrst og fremst eru þeir atvinnumenn á sínu sviði!
Lítið inn til leikstjóranna og skoðið stílbrögð hvers og eins.

Síminn Júdas 3G![]() Einhver umtalaðasta auglýsing síðari tíma framleidd af Sagafilm í samstarfi við Ennemm fyrir símann. |
Hyundai Getz "Vegferð"![]() Auglýsingin "Road trip" eða "Vegferð" segir sögu þriggja stúlkna sem halda af stað í ferðalag sem leiðir þær um hálft Ísland. Með í farteskinu er að sjálfsögðu fjör og gleði og ekki spillir að fararskjótinn er bráðnýr Hyundai Getz, sem kemur þeim öruggt á áfangastað. |
Passat Luxus frá öðru sjónarhorni![]() Við viljum gjarna halda í þá skoðun að veröldin okkar sé ekki bara svört og hvít heldur endalaus lifandi litbrigði. En ef við nú stöldrum við um stund og fjarlægjum litina, gerum við okkur kannski betur grein fyrir litauðgi hversdagslífsins. |
Tuborg tónar![]() Tuborg hefur sinn eigin hljóm samkvæmt nýrri auglýsingu, sem Sagafilm hefur nýverið framleitt um bjórinn sívinsæla, Tuborg. |
Varðan, Landsbankinn![]() Þeir Samúel og Gunnar hafa lokið við nýja auglýsingu fyrir Vörðuna, sem er vildarþjónusta Landsbankans. |
Umferðarstofa, Árekstur![]() Við erum næstum handviss um að þessi sjónvarpsauglýsing sé sú fyrsta sem tekin er upp á farsíma á Íslandi. |
OLÍS - HM fjölskyldan![]() Heimsmeistarkeppnin í fótbolta er á næsta leiti og OLÍS búðirnar munu bjóða upp á næstum allt sem þarf til að fjölskyldan geti notið sín fyrir framan skjáinn og fylgst með leikjunum. |
Gevalia, "Los Gevalios"![]() Opnaðu nýjan pakka af Gevalía kaffi og ilmurinn ber eitthvað nýtt og óvænt með sér. |
Glitnir, velgengni![]() Glitnir hóf umfangsmikla auglýsingaherferð í kjölfar nafnabreytingar Íslandsbanka í Glitnir. |
Dælan, nýjar auglýsingar Símans![]() Dælan getur þýtt margt; að tala sleitulaust eða að dæla niður. |
Tekist í hendur![]() Sagafilm framleiddi á síðasta ári nýja, stóra ímyndarauglýsingu fyrir Landsbankann. |










